*Loðinboltar*
ýmsar síður
07.07.2006 18:49:05 / Lilja

Danmerkurferðin :)

Langar að skrifa aðeins um danmerkurferðina 8)

Við steinunn fórum til Rvk 23.júní og hittum þar Grétu, vorum í kringlunni í smá tíma og hittum soldið af fólki, pabbi hennar grétu keyrði okkur svo til keflavíkur og við steina gistum hjá ömmu minni og afa, það er alltaf voða gott að vera hjá þeim :)

Daginn eftir flugum við svo út um fimmleytið á íslenskum tíma og vorum komnar um hálf ellefu á dönskum tíma, gunnhildur og trausti sóttu okkur á bílaleigubíl til Billund og fóru með okkur til Århus, við skruppum síðan niðrí bæ á soldið djamm og þar hitti ég loksins Ásgrím :D  hittum líka Kidda vin hans, hann var mjöög svo hress gaur hehe :haha:

Við vorum geggjað mikið í búðum, fórum í alla verslunarmiðstöðina og löbbuðum allt strikið, keyptum heilan helling af fötum :D  steinunn keypti samt mest held ég :)

Fórum í Den gamle by sem er inn í Århus, gamall bær sem er eins og hann var í gamla daga og maður upplifir næstum alveg hvernig lífið var, getur skoðað inn í öll húsin og þetta er allt rosalega flott :)

Fórum svo í einhvern lítinn dýragarð og skoðuðum dádýr, fyrsta skipti sem maður sér soleðis með berum augun, þau voru rosa sæt. Fórum svo í tívolí, fórum í eitt alveg geeggjað tæki, ég var samt ekki alveg að þora í það fyrst en allir ætluðu ða fara svo ég herti mig upp og fór líka og vááá hvað ég sé sko ekki eftir því, þetta var skemmtilegasta tívolí tæki sem ég hef farið í á ævinni, var ekkert hrædd fannst það bara geggjð gaman og hafði alveg verið til í að fara í það aftur :haha:

Við enduðum svo ferðina með smá djammi síðasta kvöldið, það byrjaði á því að við náðum engum strætó og einn kom ekki og einhvað vesen svo ási bjargaði okkur og fór með okkur niðrí bæ sem var bara mjög gaman :) Vorum mjög hressar, sungum hástöfum og höfðum gaman :)

Fórum svo heim daginn eftir og ég gisti hjá ömmu og afa, fór svo heim með rútunni daginn eftir.

Þetta var alveg frábær ferð í næstum alla staði, þakka bara Gunnhildi og Trausta fyrir mig og ég hlakka til að hitta ykkur næst ;)
Vona líka að ég hitti þig aftur Ási :)

Væri til í að búa í Århus um tíma einhverntíman í framtíðinni, þetta er alveg æðislegur staður !!!! :D

Ég setti inn nokkrar myndir frá ferðinni, myndirnar mínar og steinunnar en svo eru líka myndir á síðunni þeirra grétu og gunnsu. Ég setti allar myndirnar okkar steinu nema myndirnar sem þrjóskupúkinn er á, ákvað að hætta ekki á að hafa þær inn á, svo vantar slatta af flippmyndum af okkur steinu sem ég nennti ekki að vera sitja inn :P

Endilega kíkið hér til vinstri eða á slóðina http://picturetrail.com/lilja86

Verð að koma einu á framfæri í leiðinni..... ég eignaðist mína eigin harmonikku í fyrradag :D:D:D  fékk hana í fyrirfram útskriftargjöf frá ömmu og mömmu og Erlingu og guðrúnu, borga svo part í henni sjálf, hún er glæný upp úr kassanum og bara mjög flott og gott og gaman að spila á hana :D  vá, mig hafði sko ekki dottið  það í hug í haust þegar ég byrjaði að æfa að ég myndi eignast harmonikku strax 8|

En nóg í bili....   allir að commenta ;)

*LiLjA*


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 12:20:55 / Solla

.................................

Kannski er kominn tími á smá bloggerí...ég er ekki beint dugleg við þetta :P

Jæja ég byrja á byrjuninni. Ég er byrjuð að vinna á Sjúkrahúsinu. Það er bara fínt :) og það er bara ekki neitt hræðilegt eins og ég hélt :) he he

Síðustu helgi komu Sandra og Frímann í menninguna og auðvitað fórum ég og Sandra á ball á Þinghúsinu :P Við mættum þarna galvaskar um tólfleitið en fórum strax aftur vegna þess að það var ekki sála mætt nema Guðni guð, og þar sem hann hafði ekkert almennilegt slúður að segja okkur þá fórum við bara á rúntinn með Andra. Við hefðum kannski átt að sleppa því að fara á þennan blessaða rúnt. Hann endaði með því að annað afturdekkið á bílnum hans sprakk upp í Hvammi :S he he .... og þar sátum ég og Sandra fastar umvafðar 1000 þýskum túristum. En þegar útlitið var sem svartast kom Frímann á rauða kagganum og bjargaði okkur frá þessum blóðþyrstu þýsku túristum. En ég hefði kannski átt á labba af því að á leiðinni niðrá Þinghús var ég nærrum því búin að kveikja í sokk í skottinu hjá Frímanni frænda  :$En jæja... eftir þetta fórum við á ballið og þá voru fleiri mættir en Guðni :D Steinunn mín var frekar skrautleg á ballinu og daginn eftir var andlitið á henni MJÖG skrautlegt :D he he ... svona er það að detta á andlitið Kleinan mín :P En já þetta var mjög skemmtilegt ball og ég mætti hress í vinnuna daginn eftir klukkan átta :D

En já...ég get ekki beðið eftir Versunarmannahelginni :D Ég veit ekkert hvað ég á að gera :S Hvað ætlið þið að gera ?

Núna eru Steinunn og Lilja í rútunni á leiðinni suður. Á morgun fara þau svo til Danmerkur :D oh... mig langar svo með þeim! ég á eftir sakna þeirra svo mikið á meðan þær eru í Danmörkunni,...en vonandi verður geðveikt gaman hjá þeim og ekki rigning alla dagana eins og þegar ég fór :S

jæja...þetta er komið nóg í bili

Solla


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 21:39:06 / Lilja

Danmörk :D

Held það sé kominn tími fyrir eitt lítið og stutt blogg :)

Við Guðrún erum búnar að vera einar heima í nokkra daga og verðum alveg út vikuna, þau gömlu eru í sumarbústað, mjög næs að vera án þeirra sona nokkra daga :D 8)   Ótrúlegt samt hvað það safnast mikið drasl þegar mamma er ekki hér og maður hefur dótið sitt þar sem maður vill hafa það :o:$

Á föstudaginn förum við steinunn svo til Rvk, vitum ekki alveg hvernig en ég býst við að það verði rútan. Förum svo í kringluna og þar næ ég í nýju gleraugun mín og linsurnar, fer í linsukennslu :D  hlakka mjög til, hefur svo lengi langað í linsur til að nota sona þegar það er einhvað sérstakt :haha:
Síðan hittum við Grétu frænku í Kringlunni því hún kemur með okkur til dk :D
Hitti svo vonandi Nonna litla líka :)

Við steina gistum svo hjá ömmu og afa í kefl um nóttina og förum svo út á laugardeginum, vá mig hlakkar til að hitta Gunnhildi loksins aftur :D  og náttla Ásgrím :D :haha:

Þetta verður voða gaman, við steinunn ætlum ekki að kaupa ,,neitt" !!!!  maður verður að spara :D hehe

Ég kem svo náttla með pistil og myndir þegar ég kem heim :D

*LaTeR*

   


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 21:46:09 / Lilja

jamm jamm...

Ákvað að skella inn pínu bloggi til tilbreytingar ;) Ætla bara að hafa það sona punktablogg.

*  búið að vera geggjð gott veður... búin að fá þvílíkan lit :D
* Aðeins byrjuð að vinna á sjúkrahúsinu en byrja ekki á fullu fyrr en 12.júní
* Hef mikið hitt steinu sona þegar hún er ekki að vinna, erum búnar að stunda          sundlaugina :D
* náði að gata á mér hausinn á föstudaginn þegar það leið yfir mig inn á baði 8| :$
* 20 dagar í Danmerkurferð, vá hvað ég er farin að hlakka til að hitta hana Gunnhildi mína og Ásgrím :D Trúi varla að þessi ferð sé orðin að veruleika 8|:haha:
* Kalli kanína er í pössun hjá okkur, rosa gaman að hafa hann :D  langt síðan maður hefur verið með kanínu
* Snúlli minn var ekki strákur heldur stelpa, það kom endanleg sönnun á því þegar kalli kom !! :$  mjög mikið að marka þetta sölufólk stundum :S
* Gréta kemur með til Danmerkur :D   voða skrítið en það verður líka örugglega voða gaman, maður hefur ekkert hitt hana af viti í mörg ár og ekki talað við hana face to face enn í fleiri ár :cry:

Ég bara man ekki eftir neinu skemmtilegu til að skrifa hérna... þannig ég held ég hætti bara við að koma með einhvð svakalegt blogg.... en ég var að sitja inn nýjar myndir ;)  Endileg kíkja á þær ;)

LiLjA dÖgG :!:


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 20:44:05 / Solla

SNJÓR :O:O brrr...

Brrr...það er snjókoma úti :evil: oj bara oj oj...ég sem var nýbúin að dusta rykið af stuttbuxunum og hlírabolunum. Ég held að ég troði þeim bara aftur ofaní skúffu og taka helvítis kuldagallan upp aftur:evil:

En nó um það...ég fór á sveitastjórnarfund í gærkvöldi í tilefni af því að núna er ég búin að ná þeim merka áfanga að mega kjósa. Þannig að ég ætlaði þykjast vera gáfuð og skundaði niður í félagsheimili til að hlusta á frambjóðaenduna tjá sig...ég hefði nú frekar átt að sleppa því of vera heima með teppi að horfa´á Monty Python. Þetta var alveg endalaust leiðinlegt....það endaði með því að ég seldið atkvæði mitt hæstbjóðenda.Þessi hæstbjóðandi var Magga frænka og ég seldi henni atkvæðið fyrir pizzuveislu :D nammi...pizza er náttla þúsund sinnum betri en eitthvað atkvæðarusl...

Það er nú bara lítið annað að frétta af mér en það að ég er loksins komin í sumarfrí...reyndar búin að vera í fríi í viku og bara búin að hanga heima og bora í nefið. Ég fer ekki að vinna fyrr en 1. júni.

Einkunirnar mínar komu í dag :D Ég náði öllu:) vá hvað ég var happy. Ég náði stærðfræðinni með 5 :D:D ég hélt að ég hefði skítfallið...he he, en ég var mest hissa með sundið(íþróttirnar) ég var með 69% mætingu og fékk 7...og maður verður að vera með 85% mætingu til að ná :$ þannig ég veit ekki alveg af hverju ég náði...kannski fannst íþróttakennaranum bara svona gaman að horfa á mig í sundbol...he he ...ííkk8|8|

En þetta er nóg í bili...bleeh

*Solla*


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 21:32:45 / Lilja

:O :O

Ótrúlegt en satt þá ákvað ég að skella inn smá bloggi, bara sona í tilefni af sumarfríinu :D 

Tók seinasta prófið á fimmtudaginn en var svo á vistinni þar til á mánudaginn, fór þá í ökumat til Kela og spilaði svo á vortónleikum tónlistarskólns með Sollunni.... sem gekk bara vel miðað við að við æfðum okkur nánast ekkert:$:D

Prófin gengu sona þokkalega, en ég féll með stæl í stærðfræðiprófinu ooog mér gæti ekki verið meira sama 8| :haha:
Væri reyndar ekki hissa þó ég væri fallin í stærðfræði líka því ég var komin niður í 75% mætingu, er ekki sú týpa sem nennir að fara undan sænginn klukkan tíu á kvöldin og fara í íþróttir !!! 8|

Hef annars lítði að segja.... byrja að vinna 12.júní, frekar seint :S  en ég fæ nóg að gera við að hjálpa mömmu í garðinu.... yea yea :whut:
Svo er það Danmörk 23.júní með steinunni og vonandi kemst Gréta með... hlakka svakalega til.

Ætla svo bara að skella inn einni mynd frá tónleikunum, hún er reyndar mjög óskýr een mynd samt ;)

LaTeR.... LiLjA  --<--@


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 15:08:00 / Solla

Herbergið mitt er fullt af KRISTAL PLÚS !!!!

Góðan daginn

Ég vil bara benda á það að ég vissi ekkert hver titillinn á þessu bloggi átti að vera þannig að ég skrifaði bara eitthvað. Reyndar er herbergið mitt fullt af krstal plús 8| Lilja ver ein núna í nokkra daga í herberginu okkar hérna á vistinni og drekti sorgum sínum, yfir að ég væri ekki hjá henni, í kristal plús:$ þá er nú vikugamall flatur bjór betri Lilja mín....

Núna er loksins farið að sjást í endann á þessu skólaári hjá mér :haha: ég er í síðasta prófinu nuna á mánudaginn...vá hvað það verður ljúft þegar ég er búin í því. Reyndar er það strærðfræði þannig að ég veit ekkert hvernig mér á eftir að ganga...stærðfræði er ekki beint mín sterkasta hlið, reyndar held ég að flestir séu lélegir í stærðfræði þannig að það er allt í lagi :P Svo eftir prófið spilum við Lilja á tónleikum saman, hún á nikkuna og ég á fiðluna.

Svo ætla ég að birta úrslitin úr strumpakönnuninni:



Ég get ekki beiði eftir að komast heim í sumarfrí :D

Sjáumst síðar elskurnar

Sollan


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 19:50:27 / Lilja

*myndir*

Jæja þá er maður búinn að sitja inn slatta af myndum.... setti inn vistarmyndir og bætti við photoshoppaðar myndir :)  helvíti dúleg ;) 

Endilega kíkja ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 11:34:42 / Solla

Laugardagsmorgunn

Góðan daginn. Ég vona að allir séu hressir og svona á laugardagsmorgni eftir föstudagsdjammið

Já mér leiðist! ég er hérna á Króknum og það er EKKERT að gera. Ég neyðist til að læra og það er nú ekki gott fyrir sálina...ó nei. Ég er að fara í próf á eftir, þess vegna er ég nú föst á þessum Krók. Ég er að fara í sálfræðipróf...vona að það gangi bara vel af því að ég nenni sko EKKI að taka þennan áfanga upp aftur bjakk bjakk.

Á morgun neyðist ég til að vakna klukkan 10 til að spila á tónleikum upp í skóla... úff... ég á sko eftir að breiða morgunfýlunni yfir allan skólann. Það koma einhverjir krakka að sunnan til að spila með okkur þannig að við verðum held ég um fimmtíu sem spilum á fiðlur þarna...þannig að fiðlusargið á örugglega eftir að heyrast til Hvammstanga... he he :D

Svo er komið að því...á þriðjudaginn fer ég í mitt langþráða fiðluprófklukkan 10 um morguninn. Vá hvað ég er stressuð, vona að prófdómarinn verði ekkert voðalega evil :)

Jæja...best að fara að leggja mig fyrir mat :) og skella sér síðan í sálfræðipróf

kv. Sollulíusinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 11:07:50 / Solla

Er bara að mynna ykkur á að gestabókin er til ;-)

Já krakkar mínir...þetta gerist þegar við drekkum bjór8|8|:P


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 14:01:20 / Lilja

jammjamm

Það eru komnar myndir frá Dimmiteringunni hérna til hliðar.... nennti reyndar ekki að sitja allar inn því ég tók alveg um 80 myndir en þetta er betra en ekkert :)

En þetta var bara alveg geeeðveikt gaman :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 20:36:12 / Solla

ÚRSLIT ÚR SKOÐANAKÖNNUNINNI !

jæja í dag er merkisdagur....núna kemur í ljós hvað fólki finnst um Svamp Sveinsson (íslenska nafnið á þessum sæta litla snáða).

Hér kemur það...

 



Tjáið ykkur ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 00:48:34 / Lilja

einhvað dæmi...

Hvað fáiði út úr þessu kjaftæði ? 8| :)
Ég fékk ,,Ég naut ásta með svíni því ég var skökk,, !!   yea right :D hehe

Veldu mánuðinn sem þú fæddist

Janúar -
          Ég drap
Febrúar -        Ég sló
Mars -             Ég svaf hjá
Apríl -              Ég horfði á                                                           
Maí -                Ég fróaði mér með                                                                
Júní -               Ég slefaði á  
Júlí -                Ég hló að
Ágúst -            Ég stakk
September -   Ég skaut
Október -        Ég naut ásta með
Nóvember -    Ég handtók

Desember -    
Ég kúkaði á

 

                                                                                                                             

V eldu núna afmælisdaginn þinn


1.         Hóru
2.          Kærasta/una þína 
3.         Konu með HIV
4.         Kynæsandi Dverg
5.         Jólasvein
6.         Playboykanínu
7.          Giftri móður 
8.         Kennara
9.          Mömmu þína 
10.       Páskahérann
11.       Köttinn
12.       Djöflinum
13.        Asíksum skiptinema 
14.        Jónsa í Svörtum Fötum 
15.       Stein
16.       DVD spilara 
17.       Klámstjörnu
18.       Síma
19.        Tölvu
20.        Húsið þitt 
21.       Svín
22.       Lampa
23.       Kúk
24.        Davíð Oddson 
25.       50 cent
26.       Kynskifting
27.        Yddara
28.        Skólaumsókn
29.        Birgittu Haukdal 
30.       Tappatogara
31.       Prentara

V eldu Þriðja stafinn í nafninu þínu


A -       Af því að ég elska súkkulaði
B -       Af því að mér leiddist
C -       Af því að buxurnar mínar voru of þröngar 
D -       Af því að ég þarf alltaf að prumpa
E -       Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F -       Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G -      Af því mér finnst egg góð
H -      Af því að ég er á sýru
I -        Af því ég misteig mig
J -       Af því ég er með vörtu
K -      Af því  mér líkar Cheer
L -       Af því að ég var skökk/skakkur
M -      Af því ég var full/ur
N -      Af því að mamma sagði mér að gera það
O -      Af því ég er hýr
P -       Af því ér er einmanna
Q -      Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R -      Af því að ég er gröð/graður
S -      Af því mig langar að deyja 
T -      Af því ég hata skóla
U -      Af því ég þarf að fróa mér
V -      Af því að ég elska náttfata party
W -     Af því að það róar mig
X -      Af því að ég elska marmelaði 
Y -      Af því að ég elska prump

Þ -      Af því að ég fila að dilla dilla...
Ö -      Af því ég er að rassahárum 

 

Endilega commentið það sem þið fenguð ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 01:16:30 / Lilja

krókurinn again...

Þá er maður kominn á krókinn aftur og þá taka prófin við :(

Páskafríið var frábært, aðalega bara slappað af og hitt fjölskylduna og fleira fólk... bara haft það gott :) ::$

Er búin að fá vinnu... verð á sjúkrahúsinu þriðja sumarið í röð, sótti um á leikskólanum en það er svo mikil bið eftir svari og ég gat ekki látið fólkið á sjúkrahúsinu bíða endalaust eftir svari svo ég ákvað að hætta bara að hugsa um leikskólann og taka starfið á sjúkrahúsinu :)

Danmerkurferðin er orðin að veruleika !!!  8|8|8|:haha:   Gunnhildur pantaði miðana fyrir okkur steinunni í dag, við förum út 23.júní og verðum til 30.júní :)
Gréta kemst því miður ekki með og Guðrún ákvað að vera bara heima, en þær koma bara seinna :) :P
Ég hlakka svo til og vá það er svo stutt í þetta :D  Hitti bæði Gunnsu mína og Ásgrím :D:D

Talaði við Ingileif í dag og ég næ að útskrifast um jólin, meira að segja með slatta af aukaeiningum :P :D  spurði hana líka út í stærðfræðina og hún kemur ekki í veg fyrir að ég nái að útskrifast þótt ég falli því þá tek ég bara annan áfanga í staðinn, t.d. íslensku 603... en ætla samt að REYNA ná þessari stærðfræði þótt það séu litlar líkur... því ég skil nákvæmlega EKKERT :frown:8)

Sumardagurinn fyrsti á morgun sem þýðir frí :D  ætla að reyna læra einhvað :)

En ætla að sofa núna.....
                  Lilja D.


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 15:40:11 / Solla

Páskafríið búið...og skólinn byrjaður (gubb)

Jæja, þá er páskafríið búið og páskaeggið mitt líka *sniff*. Fríið var nú samt alveg hörkuskemmtilegt :D Við Lilja byrjuðum það á því að fara suður í smá hitting til Jóns og Ægis. Það var rosalega fínt og við hittum alveg haug af skemmtilegu fólki. Síðan ætluðum við að skunda niður í bæ, en ég fór nú bara heim af því að Lilja "sofanaði". Skamm skamm Lilja. Síðan gerði ég ekki neitt merkilegt meira í þessari suðurferð nema hitta Söndru frænksið mitt og fór í bíó á Ice Age 2 sem er bara nokkuð góð :) samt ekki eins góð og fyrsta myndin, en það er líka ekki hægt ....og litli íkorninn er BARA SÆTASTUR :D

                       

Síðan þegar ég kom heim á tangann slappaði ég bara af og einbeitti mér að því að éta og safna fituforða fyrir næstu ísöld. Fór í fermingu til Ásgeirs, sem er vinur bróður míns. Það var alveg frábær veisla og ótrúlega góðum skemmtiatriðum. Ekki má gleyma því að ég, Jón brósi, Kiddi og Benni Palli fórum út á Þorfinnsstaði að renna okkur á Dalshól, sem var bara stanslaust fjör. Við komumst samt varla úr stað af því að í hverju skrefi sukkum við upp að klofi í snjónum...en við létum það nú ekki stöðva okkur og renndum okkur lengi lengi. En auðvitað þurfti ég að enda á því að detta beint á rófubeinið beint á klettinn, eins og ALLTAF þegar ég fer að renna mig þá meiði ég mig ALLTAF í rófubeinið. Það er einhver búinn að leggja álög á mig....eeeennn ég lét það nú ekki stöðva mig og renndi mér eina ferð í viðbót, en þá komst ég líka að því að það var VONT. Þannig var nú það...en núna er ég komin á Krókinn og get ekki beðið eftir sumarfríinu.

Skrifa meira seinna

Solla


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2